Allt að ske ;)

Í dag er dagurinn sem ég útskrifast af VINNUBRAUT.  Í tilefni af því þá bakaði ég brownies í gærkvöldi fyrir vini mína í Janus.  En ekki hvað!  Ég er samt sem áður ekki endanlega hætt í Janus þar sem ég byrja á einstaklingsbraut þegar ég kem heim frá ameríku, verð með annan fótinn í Janus þangað til ég fæ starf. 

Í dag er líka dagurinn sem einkaþjálfuninni í boxi lýkur formlega en undanfarna tvo mánuði hef ég verið í þjálfun hjá Vilhjálmi í Hnefaleikastöðinni.  Búin að eiga góðan tíma þar.  Mjóg góðan!  En ég mun snúa aftur í júlí en þá ætla ég að skella mér í tíma sem heita "Byrjendabox" en þeir eru kenndir alla virka daga klukkan 17:30. 

Annars er Texas ferðin mín að skella á, ekki nema 4 dagar í dag.  Ég er komin á það stig að það er að renna upp fyrir mér að ég er í alvörunni að fara út.  En einhverra hluta vegna hef ég hingað til fundist það vera óraunverulegt að ég sé á leiðinni þangað, var spennt en samt ótrúlega róleg, svona eins og ég tryði því ekki að drauma ferðalagið mitt sé að rætast. Samt hef ég undanfarnar vikur horft á ferðatöskuna mína, vegabréfið og flugmiðana.  Fór meira segja í bankann í síðustu viku og náði mér í dollara. 

En já, hjartað er byrjað að slá örar og fólkið í kringum mig hefur verið að minna mig á að ég er bráðum að leggja í ´ann.  Þá hlýt ég að vera fara!

En ég er búin að lofa sjálfri mér því að ég ætla vera dugleg að blogga úti, leyfa ykkur að upplifa lífið í Galveston TX með mér, sýna ykkur jafnvel einhverjar myndir líka. 

Langar ykkur það annars ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gòða skemmtun ì ùtlandinu elsku Làra. Við komum heim à sunnudagsmorgun frà USA en það er bùið að vera òtrùlega skemmtilegt hér. Þetta à eftir að verða æðisleg ferð hjà þér, njòttu 😀

Hin (IP-tala skráð) 29.5.2015 kl. 13:18

2 identicon

U jú takk ! vil fá myndir. og svo hittumst við í boxinu í júlí ekki satt?

gerður (IP-tala skráð) 29.5.2015 kl. 23:03

3 identicon

Já takk, endilega setja myndir

Pabbi (IP-tala skráð) 3.6.2015 kl. 13:49

4 Smámynd: Lára Harðardóttir

Það eru komnar nokkrar myndir inn í Texas myndaalbúmið mitt.

Lára Harðardóttir, 4.6.2015 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband